Árni Björn meistari í annað sinn
Nú rétt í þessu var seinustu Meistaradeildarkeppni tímabilsins að ljúka en svo fór að Árni Björn Pálsson stóð uppi með pálmann í höndunum og var langstigahæstur keppenda þetta tímabilið.
Í öðru sæti var Ísólfur Líndal Þórisson og þriðji varð Sigurbjörn Bárðarson.
Í kvöld fóru fram tvær greinar tölt T2 þar sem Lena Zielinski sigraði á hryssunni Melkorku frá Hárlaugsstöðum 2 en í skeiðinu í gegnum höllina sigraði Bjarni Bjarnason á Heru frá Þóroddsstöðum á tímanum 5,97 sekúndum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH