Árni Björn Meistarinn 2022
Árni Björn Pálsson er Meistarinn 2022. Þetta er sjötta árið sem hann sigrar einstaklingskeppnina í Meistaradeildinni en hann sigraði árið 2014, 2015, 2016, 2018, 2021 og 2022. Árni hlaut 64,5 stig, hálfu stigi meira en í fyrra. Þetta er þó ekki stigamet hjá Árna en hann hlaut 67 stig þegar hann sigraði deildina árið 2016. Árni vann þrjár greinar í vetur, fimmganginn á Kötlu frá Hemlu II, gæðingaskeiðið á Álfamær frá Prestsbæ og 150 m. skeiði á Ögra frá Horni.
Í öðru sæti endaði Teitur Árnason með 42 stig og í því þriðja varð Mette Mannseth með 24 stig.
Hér fyrir neðan eru efstu 10 knaparnir í einstaklingskeppninni
- Árni Björn Pálsson – Top Reiter 64,5
- Teitur Árnason – Top Reiter 42
- Mette Moe Mannseth – Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 24
- Sigursteinn Sumarliðason – Skeiðvellir/Storm Rider 22,5
- Flosi Ólafsson – Hrímnir/Hest.is 21
- Glódís Rún Sigurðardóttir – Ganghestar/Margrétarhof 19,5
- Sara Sigurbjörnsdóttir – Auðsholtshjáleiga/Horse export 19
- Daníel Gunnarsson – Auðsholtshjáleiga/Horse export 18
- Konráð Valur Sveinsson – Top Reiter 18
- Hinrik Bragason – Hestvit/Árbakki 17
Top Reiter sigraði liðakeppnina annað árið í röð með 377,5 stig og í fjórða skiptið sem liðið sigrar deildina (2014, 2017, 2021, 2022) Frábær árangur hjá liðinu sem stóðu efst eftir fyrsta mótið og héldu forustunni í allan vetur. Þau hlutu liðaplattan í fjórgangum og í 100 m. skeiðinu. Knapar í liðinu eru þau Árni Björn Pálsson, Eyrún Ýr Pálsdóttir, Hanna Rún Ingibergsdóttir, Konráð Valur Sveinsson og Teitur Árnason.
Í öðru sæti varð lið Ganghesta/Margrétarhofs með 328 stig en knapar liðsins eru Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Ragnhildur Haraldsdóttir, Reynir Örn Pálmason og Sigurður V. Matthíasson. í þriðja sæti endaði lið Hjarðartúns með 311,5 stig en liðsmenn eru Reynir Örn Pálmason, Hans Þór Hilmarsson, Helga Una Björnsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson og Þórarinn Ragnarsson.
Liðakeppnin 2022
- Top Reiter 377,5
- Ganghestar/Margrétarhof 328
- Hjarðartún 311,5
- Auðsholtshjáleiga/ Horse export 304,5
- Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 287
- Hrímnir/Hest.is 271,5
- Hestvit/Árbakki 269
- Skeiðvellir/Storm Rider 251
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH