Íslenska landsliðið hefur staðið sig með glæsibrag það sem af er Heimsmeistarmótinu. Í dag tryggðu Rúna Einarsdóttir Zingsheim og Árni Björn Pálsson sér bæði keppnisrétt í A-úrslitum fimmgangskeppninnar. Hlutu þau sömu einkunn 7,13 og eru jöfn í 4.-5. sæti. Bæði sýndu þau styrk sinn með fáguðum og öruggum sýningum og er ljóst að bæði Freyr og Aris eiga mikið inni fyrir úrslitin sem fara fram á sunnudag.
Efstur er Vignir Jónasson á fyrrverandi heimsmeistaranum Kraft frá Bringu en þeir keppa fyrir hönd Svíþjóðar og hlutu 7,53 fyrir sýningu sína.
Ríkjandi heimsmeistari Stian Pedersen mætti með nýjan keppnishest til leiks, Léttir fra Hellesylt og hlaut 7,10 og er efstur inn í B-úrslit. Nú er spurning hvort Stian ætli sér að endurtaka leikinn frá síðasta Heimsmeistaramóti, en þá óð hann með Tind frá Varmalæk upp úr B-úrslitum og sigraði svo eftirminnilega A-úrslit keppninnar.
Gaman var að sjá gömlu brýnin Ljósvaka frá Akureyri og Núma frá Þóroddsstöðum á vellinum. Þeir gáfu yngri klárum ekkert eftir og getur knapi Ljósvaka, hin norska Stine Helene Sørvåg, verið kampakát í 11. sæti heimsmeistaramóts með þennan 19 vetra gamla gæðing.
Meðfylgjandi eru úrslit forkeppninnar:
01: Vignir Jónasson [SE] – Kraftur frá Bringu [IS1995165864] 7,53
PREL 7,7 – 7,5 – 7,4 – 7,3 – 7,8
02: Josefin Birkebro [SE] – Kjarni vom Wallberg [DE1999108313] 7,33
PREL 7,4 – 7,1 – 7,2 – 7,4 – 7,5
03:Julie Christiansen [DK] – Örn frá Efri-Gegnishólum [IS2003187767] 7,23
PREL 7,4 – 7,3 – 7,2 – 7,2 – 6,9
03:Vicky Eggertsson [DE] – Kvikur vom Barghof [DE1995102522] 7,23
PREL 7,4 – 7,0 – 7,0 – 7,3 – 7,5
05:Árni Björn Pálsson [IS] – Aris frá Akureyri [IS2000165607] 7,13
PREL 7,4 – 7,0 – 7,4 – 7,0 – 6,9
05:Rúna Einarsdóttir Zingsheim [WC] [IS] – Freyr vom Nordsternhof [DE1998109432] 7,13
PREL 7,6 – 6,9 – 7,2 – 7,1 – 7,1
_______________________________________________________________________________
07: Stian Pedersen [WC] [NO] – Léttir fra Hellesylt [NO2004115369] 7,10
PREL 7,2 – 7,1 – 6,5 – 7,1 – 7,1
08: Magnús Skúlason [SE] – Hraunar frá Efri-Rauðalæk [IS1999165491] 7,03
PREL 7,4 – 6,9 – 6,9 – 6,8 – 7,3
09: Sandra Jonsson [YR] [SE] – Ari från Stora Öllstorp [SE1996106814] 6,90
PREL 6,9 – 6,8 – 7,0 – 7,1 – 6,6
10: Samantha Leidesdorff [DK] – Casanova vom Hrafnsholt [DE2002134106] 6,77
PREL 6,5 – 7,0 – 7,1 – 6,8 – 6,2
11: Stine Helene Sørvåg [YR] [NO] – Ljósvaki frá Akureyri [IS1992165495] 6,60
PREL 6,8 – 6,6 – 6,3 – 6,7 – 6,5
12: Diddi Sigurbjörnsson [CH] – Tvinni frá Grafarkoti [IS2001155419] 6,57
PREL 6,5 – 6,6 – 6,6 – 6,8 – 6,5
13: Kristin Elise Andersen [NO] – Grandi frá Laugardal [IS2001157795] 6,53
PREL 6,7 – 6,6 – 6,4 – 6,3 – 6,6
14: Ralf Wohllaib [DE] – Eldur vom Schwäbischen Wald [DE1998103532] 6,50
PREL 6,7 – 6,4 – 6,4 – 7,3 – 6,1
14: Marie Lichtenegger [AT] – Glaður frá Brattholti [IS2000188500] 6,50
PREL 6,5 – 6,6 – 6,4 – 6,3 – 6,6
16: Catherine Mynn [CH] – Snotri vom Lipperthof [DE1995110425] 6,40
PREL 6,6 – 6,4 – 6,2 – 6,4 – 6,4
17: Jaap Groven [NL] – Gimsteinn frá Skáney [IS1994135801] 6,30
PREL 6,5 – 6,0 – 5,7 – 6,5 – 6,4
18: Thomas Larsen [NO] – Harry fra Stugudal [NO2001116001] 6,20
PREL 6,6 – 6,4 – 5,5 – 6,4 – 5,8
18: Chrissy Seipolt [US] – Dreki vom Wotanshof [DE2003134634] 6,20
PREL 6,1 – 6,5 – 6,2 – 6,3 – 6,1
20: Camilla Jørgensen [YR] [DK] – Númi frá Þóroddsstöðum [IS1993188802] 5,90
PREL 6,5 – 5,6 – 5,7 – 5,1 – 6,4
21: Liisa Leppänen [FI] – Lísa frá Eystri-Hól [IS2001280621] 5,77
PREL 6,1 – 5,4 – 5,8 – 5,9 – 5,6
22: Jóanis Hoygarðinum [FO] – Heklugígur frá Langholti II [IS1997187362] 5,57
PREL 6,9 – 5,6 – 5,6 – 5,4 – 5,5
23: Toke Van Branteghem [BE] – Eldjárn vom Mandelbachtal [DE1993105252] 5,53
PREL 5,9 – 5,9 – 5,6 – 5,1 – 5,0
24: Julija Stamcar [YR] [SI] – Flögri frá Flekkudal [IS1998125045] 4,77
PREL 5,1 – 4,6 – 4,6 – 4,6 – 5,1
25: Mieke van Herwijnen [NL] – Spá frá Ármóti [IS2002286134] 4,40
PREL 4,5 – 4,4 – 4,4 – 4,1 – 4,4
Christian Indermaur [CH] – Máttur frá Torfunesi [IS2002166211] 0,00
PREL 0,0 – 0,0 – 0,0 – 0,0 – 0,0