Árni Björn Pálsson er knapi ársins
Ární Björn Pálsson á Ljúf frá Torfunesi
Árni Björn Pálsson er knapi ársins 2021 en valið var kunngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er á Hotel Natura. Árni Björn átti gott ár bæði á keppnisbrautinni og kynbótavelli og sýnir ávallt prúða og fagmannlega reiðmennsku. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Árni Björn Pálsson átti frábæru gengi að fagna í ár í öllum greinum hestamennskunnar. Of langan tíma tæki að telja upp öll hans afrek en þeim helstu verða gerð skil. Íslandsmeistari í tölti á Ljúfi frá Torfunesi með einkunnina 9,44 og efstur á stöðulista í þeirri grein með einkunnina 9,20. Reykjavíkurmeistari í tölti á Hátíð frá Hemlu með 9,28 í einkunn. Hann er efstur á stöðulista ársins í fimmgangi á Kötlu frá Hemlu II með 7,73 í einkunn og reið henni til úrslita í þeirri grein á Íslandsmótinu. Hann sýndi fjöldan allan af frábærum kynbótahrossum eins og áður hefur verið upp talið. Hann er ofarlega á stöðulistum í öllum vegalengdum skeiðgreina á þeim Óliver frá Hólaborg og Ögra frá Horni. Hann sýndi Ljósvaka frá Valstrýtu í B-flokki gæðinga og reið honum í 8,80 í forkeppni sem er þriðja hæsta einkunna ársins. Þá náði hann frábærum árangri í gæðingaskeiði á Snilld frá Laugarnesi. Árni Björn er á meðal fremstu íþróttamanna landsins og mætir alltaf einbeittur og vel undirbúinn til leiks hann er öðrum knöpum fyrirmynd í framkomu og hlýtur titilinn knapi ársins með sæmd.“
Einnig voru knapar ársins í eftirtöldum greinum valdir:
- Efnilegasti knapi ársins – Guðmar Freyr Magnússon
- Íþróttaknapi ársins – Jakob Svavar Sigurðsson
- Gæðingaknapi ársins – Daníel Jónsson
- Kynbótaknapi ársins – Árni Björn Pálsson
- Skeiðknapi ársins – Konráð Valur Sveinsson
Keppnishestabú ársins var valið Þúfur, Mette Mannseth og Gísli Gíslason
Eiðfaxi óskar öllum þessum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangur ársins!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH