Ásdís og Guðmar verðlaunuð

  • 21. maí 2023
  • Fréttir

Guðmar og Ásdís Mynd: Valborg Jónína Hjálmarsdóttir

Reiðsýning 3. árs nema við Háskólann á Hólum

Í gær fór fram reiðsýning þriðja árs nema við Háskólann á Hólum í tengslum við útskrift þeirra frá skólanum. Afhent voru tvenn verðlaun fyrir árangur í náminu.

Ásdís Ósk Elvarsdóttir hlaut Morgunblaðshnakkinn sem er veittur fyrir besta samanlagðan árangur öll þrjú árin í reiðmennsku áföngum.

Guðmar Freyr Magnússon hlaut FT skjöldinn en hann er veittur þeim nemanda sem stendur efstur í lokaprófi í áfanganum „Þjálfun keppnishesta II“.

Eiðfaxi óskar þeim báðum og öllum útskriftarnemendum til hamingju með árangurinn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar