Áskorun

  • 13. október 2010
  • Fréttir
Áskorun

til reiðkennara og leiðbeinenda sem hafa verið að kenna Knapamerki…

Þónokkur brögð eru að því að þeir sem hafa haft umsjón með og/eða kennt Knapamerkjanámskeið skila ekki af sér einkunum og niðurstöðum til nemenda og Hólaskóla. Þetta veldur því að allt of margir nemendur fá aldrei niðurstöður úr prófum né prófskírteini og eru ekki skráðir í gagnabanka Knapamerkjanna. Þessir nemendur hringja oft í umsjónaraðila Knapamerkjanna og leita upplýsinga og staðfestinga á frammistöðu sinni m.a. til að geta fengið Knapamerkin metin sem hluta af námi í framhaldsskólum. Því miður er ekki hægt að hjálpa þessum nemendum þar sem Hólaskóli hefur ekki fengið staðfestingar á að þeir hafi lokið prófum.

Á heimasíðu Knapamerkjanna (knapi.holar.is) má finna á kennarasvæði ítarlegar upplýsingar um framgang prófa og skil á gögnum til skólans til að próf teljist gild. Í þessu sambandi má að auki má benda á þann mikilvæga þátt að kennarar og leiðbeinendur fylgi námsmati, prófum og einkunagjöf eftir til nemenda svo þeir fái að vita stöðu sína, geti bætt sig og viðhaldið áhuga sínum í Knapamerkjanáminu.

Skil á gögnum eru í góðu lagi hjá mörgum en eins og alltaf þá eru það svörtu sauðirnir sem þurfa að taka sig á!
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link