Athugasemd við pistil Andrésar Péturs
Stjórn Félags hesthúseigenda í Víðidal vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemd varðandi svar Andrésar Péturs við bréfi frá stjórn Fáks „Brekknaás 9 – gamla hundahótelið“.
Í svari sínu fullyrðir Andrés Pétur að meirihluti hestamanna í Víðidal séu ófélagsbundnir og gefur í skyn að til sé félag sem heitir „Víðidalsfélagið“.
Hesthúseigendur í Víðidal hafa með sér félag sem heitir „Félag hesthúseigenda í Víðidal“ og er eins og nafnið gefur reyndar til kynna ekki hestamannafélag heldur húseigendafélag.
Að sjálfsögðu gefum við okkur að félagsmenn í „Félagi hesthúseigenda í Víðidal“ séu einnig félagar í Fáki.
Virðingarfyllst Stjórn „Félags hesthúseigenda í Víðidal“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH