B úrslitum lokið á Hellu

  • 28. maí 2023
  • Fréttir

B úrslit tölt T1 meistaraflokkur

Niðurstöður úr b úrslitum á WR Íþróttamóti Geysis

Í dag var keppt í b úrslitum á WR Íþróttamóti Geysis og mæta þau pör sem unnu sér inn sæti í dag í a úrslit á morgun. Í tölti T1 í meistaraflokk er það Ásmundur Ernir Snorrason á Aðdáun frá Sólstað sem mætir í a úrslit á morgun. Í fimmgangi F1 í meistaraflokk mætir í a úrslitin Guðmundur Björgvinsson á Ganda frá Rauðalæk. B úrslitin í fjórgangi V1 í meistaraflokk vann Eyrún Ýr Pálsdóttir á Blæng frá Hofsstaðaseli. Þorgils Kári Sigurðsson á Eldjárn frá Kolsholti og Hanna Rún Ingibergsdóttir á Sól frá Kirkjubæ voru jöfn í 6.-7. sæti í b úrslitum í fjórgangi V2 þannig þau mæta bæði í a úrslit á morgun.

Katrín Sigurðardóttir á Hauk frá Skeiðvöllum og Sigríkur Jónsson á Fjöður frá Syðri-Úlfsstöðum unnu sér bæði inn rétt til að mæta í a úrslit í fimmgangi F2 í 1. flokk á morgun. Eik Elvarsdóttir og Heilun frá Holtabrún unnu b úrslitin í fjórgangi V2 í unglingaflokk.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr öllum b úrslitum dagsins

B-úrslit Tölt T1 Meistaraflokkur
6. sæti Ásmundur Ernir Snorrason og Aðdáun frá Sólstað 7.67
7. sæti Elvar Þormarsson og Pensill frá Hvolsvelli 7.56
8. sæti Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Fenrir frá Kvistum 7.28
9. sæti Sigurður Sigurðarson og Garún frá Þjóðólfshaga 1 7.17
10. sæti Lea Schell og Krans frá Heiði 6.67

May be an image of 6 people and horse

B-úrslit fjórgangur V2 Meistaraflokkur
6.-7. sæti Þorgils Kári Sigurðsson og Eldjárn frá Kolsholti 3 6.23
6.-7. sæti Hanna Rún Ingibergsdóttir og Sól frá Kirkjubæ 6.23
8. sæti Carolin Annette Boese og Freyr frá Kvistum 6.1
9. sæti Svanhildur Guðbrandsdóttir og Öðlingur frá Ytri-Skógum 6.03
10. sæti Hjörvar Ágústsson og Úlfur frá Kirkjubæ 4.67

May be an image of 6 people and horse

B-úrslit fjórgangur V2 Unglingaflokkur
6. sæti Eik Elvarsdóttir og Heilun frá Holtabrún 6.34
7. sæti Þórdís Agla Jóhannsdóttir og Kolfinna frá Björgum 6.3
8. sæti Friðrik Snær Friðriksson og Flóki frá Hlíðarbergi 6.23
9. sæti Ída Marín Hlynsdóttir og Marín frá Lækjarbrekku 2 6
10. sæti Snæfríður Ásta Jónasdóttir og Sæli frá Njarðvík 5.77

May be an image of 5 people and horse

Fjórgangur V1 Meistaraflokkur B-úrslit
7. sæti Eyrún Ýr Pálsdóttir og Blængur frá Hofsstaðaseli 7.40
8. sæti Ásmundur Ernir Snorrason og Happadís frá Strandarhöfði 7.33
9. sæti Arnar Bjarki Sigurðarson og Logi frá Lerkiholti 7.23
10. sæti Ólöf Rún Guðmundsdóttir og Steinar frá Stuðlum 7.13

May be an image of 5 people and horse

B-úrslit fimmgangi F2 1. flokkur
6-7. sæti Katrín Sigurðardóttir og Haukur frá Skeiðvöllum 6.43
6.-7. sæti Sigríkur Jónsson og Fjöður frá Syðri-Úlfsstöðum 6.43
8. sæti Eveliina Aurora Martis og Sigur frá Sunnuhvoli 5.69
9. sæti Malin Marianne Andersson og Skálmöld frá Miðfelli 2 5.5

May be an image of 6 people and horse

B-úrslit í fimmgangi F1 Meistaraflokk.
6. sæti Guðmundur Björgvinsson og Gandi frá Rauðalæk 7.024
7. sæti Ragnhildur Haraldsdóttir og Ísdís frá Árdal 7
8. sæti Ólafur Ásgeirsson og Hekla frá Einhamri 2 6.98
9. sæti Þórarinn Ragnarsson og Herkúles frá Vesturkoti 6.93
10. sæti Anna Kristín Friðriksdóttir og Hula frá Grund 6.69

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar