Bein útsending frá Viking Masters
Síðasti dagur Viking Masters er runninn upp og erum við mjög ánægð með að geta fært þér spennandi og háklassa lokaumferð þessarar nýju mótaraðar í beinni útsendingu heim til þín.
Keppt er einungis í úrslitum í dag en keppendur voru búnir að vinna sér inn þátttökurétt á lokamótinu í þremur undankeppnum sem haldnar voru í vetur. HÉR er hægt að sjá ráslista og dagskrá mótsins. Byrjað er á úrslitum í slaktaumatölti T4, síðan tölt T7 og T3, fimmgangur F1, fjórgangur V2 og V1, slaktaumatölt T2, fjórgangur V5, fimmgangur F2 og að lokum tölt T1
Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að horfa á beinu útsendinguna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH