Birna Olivia kjörin íþróttamaður USVH 2023

  • 3. janúar 2024
  • Fréttir

Birna Olivia Ödqvist hestakona hefur verið kjörin íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2023.

Kjörinu var lýst við athöfn í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga 30. desember síðastliðinn.

Birna Olivia kom öflug inn á árinu sem keppnismaður í hestaíþróttum og var m.a. í liði í Suðurlandsdeildinni sem vann þá deild. Einnig lenti hún í fyrsta sæti í tveimur greinum á mjög sterku Reykjvíkurmeistaramóti  í sumar.

Í öðru sæti í kjörinu varð Hilmir Rafn Mikaelsson knattspyrnumaður og í þriðja sæti varð Ingvi Rafn Ingvarsson knattspyrnumaður.

Keppnisárangur ársins:

Suðurlandsdeild

Parafimi

1. sæti – Tindur frá Árdal

Fjórgangur

1. sæti – Tindur frá Árdal

Tölt

5. sæti – Tindur frá Árdal

Opið WR Íþróttamót Geysis 25. maí

Meistaraflokkur T3

1. sæti – Kór frá Skálakoti

Meistaraflokkur V2

1. sæti – Ósk frá Stað

Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR 12. júní

1. Flokkur T3

1. sæti – Kór frá Skálakoti

1. Flokkur V2

1. sæti – Ósk frá Stað

WR Suðurlandsmót 25. ágúst

Meistaraflokkur T2

3. sæti – Ósk frá Stað

Meistaraflokkur V1

6. sæti – Ósk frá Stað

Meistaraflokkur V2

3. sæti – Röskva frá Ey I

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link