Bjarni Jónasson sigraði töltið
Bjarni Jónasson og Randalín frá Efri-Rauðalæk tryggðu sér sigurinn í tölti KS-deildarinnar sem fór fram í Svaðastaðahöllinni í kvöld, með einkunnina 8.22. Afmælisbarnið Mette Mannseth og Trymbill frá Stóra-Ási voru jöfn Ísólfi Líndal Þórissyni og Freyði frá Leysingjastöðum II í 2-3 sæti, en Mette og Trymbill hlutu 2. sætið eftir hlutkesti. Bjarni og Randalín áttu mjög góða sýningu í kvöld og voru efst eftir forkeppni, og fljótlega kom í ljós í úrslitum að erfitt yrði að víkja þeim úr efsta sætinu. Teitur Árnason og Ormur frá Sigmundarstöðum höfnuðu í 4. sæti og Hekla Katharína Kristinsdóttir og Vígar frá Skarði enduðu í 5. sæti.
A-úrslit
1. Bjarni Jónasson og Randalín frá Efri-Rauðalæk – 8.22
2. Mette Mannseth og Trymbill frá Stóra-Ási – 7.61
3. Ísólfur Líndal Þórisson og Freyðir frá Leysingjastöðum II – 7.61
4. Teitur Árnason og Ormur frá Sigmundarstöðum – 7.56
5. Hekla Katharína Kristinsdóttir og Vígar frá Skarði – 7.50
B-úrslit
1. Mette Mannseth og Trymbill frá Stóra-Ási – 7.67
2. Þórarinn Eymundsson og Taktur frá Varmalandi – 7.50
3. Líney María Hjálmarsdóttir og Sprunga frá Bringu – 7.22
4. Jóhann Magnússon og Oddviti frá Bessastöðum – 6.94
5. Þorbjörn H. Matthíasson og Hekla frá Hólshúsum – 6.89
Stigahæstu knapar eftir 3 greinar
Ísólfur Líndal 27 stig
Bjarni Jónasson 22 stig
Viðar Bragason 14 stig
Mette Mannseth 14 stig
Elvar Einarsson 11 stig
A landsliðshópur Íslands