Bjarnleifur býst við glæsilegu móti – viðtal

  • 1. apríl 2011
  • Fréttir
Bjarnleifur býst við glæsilegu móti - viðtal

Ístöltið „Þeir allra sterkustu“ fer fram á morgun í Skautahöllinni í Laugardal og hefst kl. 20.

Ístöltið hefur verið árlegur kynningar- og fjáröflunarviðburður fyrir landslið Íslands í hestaíþróttum síðastliðinn sjö ár og er mikilvægur hlekkur í undirbúningi og kynningu á verkefnum Landsliðsnefndar.

„Ístöltið er ekki aðeins frábær skemmtun og spennnandi mót heldur hefur það ávallt verið mikil og jákvæð fjáröflun fyrir verkefni landsliðsins. Ístöltið hefur gert starfsemi Landssambands Hestamannafélaga og Landsliðsnefndar sýnilegt og er um leið kynning á okkar stærstu styrktaraðilum,“ segir Bjarnleifur Bjarnleifsson, formaður Landsliðsnefndar.

Hann býst við harðri og spennandi keppni á svellinu á morgun. „Alltaf þegar Ístöltinu lýkur hef ég haft þá skoðun að aldrei hafi keppnin verið glæsilegri. Ég held að í ár verði enginn undantekning þar á því á mótið eru skráðir mjög sterkir hestar og góðir knapar. Að auki verða kynntir athyglisverðir stóðhestar sem verður gaman að sjá á svellinu og þá hefur vinningur happadrættisins aldrei verið veglegri,“ segir Bjarnleifur en happadrættisvinningurinn í ár er folatollur undir Krák frá Blesastöðum 1A.

Mikið annríki er nú hjá Landsliðsnefnd sem vinnur nú að kynningum á þeim fjölmörgu verkefnum sem liggja fyrir nefndinni og landsliðsstjórum. „Við erum ákaflega spenntir fyrir úrtökunni sem mun nú fara fram samhliða Gullmóti Sörla daganna 15.-18. júní nk. Við heyrum að knapar ætli að leggja fram sína bestu hesta sem tryggir spennandi úrtöku og sterkt landslið,“ segir Bjarnleifur.

Forsala miða á „Þeir allra sterkustu“ fer fram í verslun Líflands að Lynghálsi, Top Reiter í Ögurhvarfi, Ástund á Háaleitisbraut og Baldvin & Þorvaldi á Selfossi. Einnig verða miðar seldir við innganginn og hefst miðasala kl. 18.30 í anddyri Skautahallarinnar. Miðaverð er 3.000 kr og opnar höllin kl. 19.15.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link