Blue Lagoon mótaröðin Blue Lagoon fimmgangur og pollatölt

  • 3. mars 2023
  • Tilkynning
Skráningu lýkur í kvöld

Hestamannafélagið Sprettur í samstarfi við BLUE LAGOON býður upp á mótaröð í Samskipahöllinni fyrir knapa í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.

Mánudaginn 6.mars kl.17:30 verður keppt í sérstökum pollaflokki ásamt fimmgangi F2 í yngri flokkum. Keppt verður eftir lögum og reglum LH.

Skráning er í gegnum sportfengur.com og lýkur á miðnætti föstudaginn 3.mars. Ráslistar eru birtir laugardaginn 4.mars. Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.

Skráningargjöld eru 3000 kr. fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokk. Frítt er fyrir polla að taka þátt. Allir knapar í pollaflokki fá þátttökuverðlaun.

Afskráningar sendist á [email protected]

Allar upplýsingar um mótið má finna á Facebook viðburði mótsins – BLUE LAGOON MÓTARÖÐ SPRETTS – pollakeppni og fimmgangur.

Pollakeppnin fer þannig fram að riðið verður á hringvellinum og riðið zikk-zakk á milli keilna sem verður stillt upp á langhliðum. Frjálst er að mæta í búning, hvort sem það er hestur eða knapi eða báðir! Frjálst er að hafa með sér aðstoðarmann (til að teyma) eða ekki. Skipt verður í holl og munu 4-6 pollar ríða inn á í einu og leysa þrautir. Allir knapar í pollaflokki fá þátttökuverðlaun.

Eftirfarandi flokkar og greinar eru í boði:

  • Pollaflokkur (3 – 9 ára) – búninga og þrautabraut
  • Barnaflokkur (10 – 13 ára) – Fimmgangur F2
  • Unglingaflokkur (14 – 17 ára) – Fimmgangur F2
  • Ungmennaflokkur (18-21 ára) – Fimmgangur F2

Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni mánudaginn 6.mars nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link