Blue Lagoon mótaröðin að fara af stað

  • 7. febrúar 2024
  • Tilkynning
Fyrsta mótið verður keppt í fjórgangi
Blue Lagoon mótaröðin hefst fimmtudaginn 15. febrúar kl.17:30 í Samskipahöllinni. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum og keppt verður í fjórgangi.

Eftirtaldir flokkar verða í boði;

  • Barnaflokkur (10-13ára): V5 (léttari fjórgangur) og V2
  • Unglingaflokkur (14-17ára): V2
  • Ungmennaflokkur (18-21árs): V2
HÉR má nálgast reglur um íþróttakeppni:

Sex efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.
Skráning er opin og fer fram á Sportfeng

Skráningu lýkur á miðnætti mánudaginn 12.febrúar. ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur. Skráningargjöld eru 3500kr.
Ráslistar og dagskrá verður birt þriðjudaginn 13.febrúar á facebook síðu mótsins. Veitingasala verður opin í veislusalnum. Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni sunnudaginn 11.febrúar kl.18:00-20:00.
„Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni fimmtudaginn 15.febrúar nk,“ segir í tilkynningu frá Blue Lagoon nefndinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar