Blundur frá Þúfum í A-úrslit í B-flokki
B-úrslit í B-flokki gæðinga gefa góð fyrirheit fyrir úrslitadaginn á morgun. Blundur frá Þúfum sýndur af Metta Mannseth stóð efstur í þessum úrslitum með 8,75 í einkunn. Mette er því með tvo hesta á A-úrslitum á morgun í B-flokki en auk Blunds sýndi hún List frá Þúfum.
í 9 sæti og annar í B-úrslitum varð Brynjar frá Syðri-Völlum sýndur af Jakobi Svavar Sigurðssyni með 8,73 í einkunn, einungis tveimur kommum lægri en Blundur.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 8 | Blundur frá Þúfum / Mette Mannseth | 8,75 |
| 9 | Brynjar frá Syðri-Völlum / Jakob Svavar Sigurðsson | 8,73 |
| 10 | Rökkvi frá Hólaborg / Þorgeir Ólafsson | 8,55 |
| 11 | Sól frá Söðulsholti / Bjarki Þór Gunnarsson | 8,51 |
| 12 | Jónas frá Litla-Dal / Sonja Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir | 8,51 |
| 13 | Hylur frá Flagbjarnarholti / Guðmar Þór Pétursson | 8,49 |
| 14 | Hraunar frá Vatnsleysu / Arndís Brynjólfsdóttir | 8,47 |
| 15 | Galdur frá Geitaskarði / Bergrún Ingólfsdóttir | 8,11 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH