Blundur til afnota á suðurlandi eftir Fjórðungsmót

  • 5. júlí 2021
  • Fréttir

Glæsihesturinn Blundur frá Þúfum verður til afnota á suðurlandi í Skúmstaðagirðingu við Eyrarbakka eftir fjórðungsmót. Blundur skartar háum kynbótadómi, í aðaleinkunn 8,43 sýndur án skeiðs og má þar nefna 9,5 fyrir tölt, brokk og bak og lend svo eitthvað sé nefnt.

Blundur er undan gæðingamóðurinni Lygnu frá Stangarholti og hinum þekkta Vita frá Kagaðarhóli. Blundur er farinn að láta að sér kveða í keppnisbrautinni og hefur til að mynda gert það gott bæði í B-flokki og var í A-úrslitum á nýafstaðnu íslandsmóti í slaktaumatölti.

Myndskeið af hestinum má sjá hér að neðan.

Verð m/öllu er 135 þúsund og bókanir berist Braga Andréssyni í síma 699 0713 Helga Guðmundssyni í síma 820 3506 eða í facebook skilaboðum

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link