Boðið verður upp á sköpulagsdóm
Sunnudaginn 9. febrúar n.k. stendur Náttfari fyrir folaldasýningu í Melaskjóli á Melgerðismelum. Dómari verður Eyþór Einarsson en fyrirkomulagið verður þannig að hann dæmir sköpulag folaldanna fyrir hádegi – þau þurfa því að vera mætt í hús klukkan 10:00 að morgninum. Eftir hádegið verður sjálf sýningin.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu folöld í hryssu- og hestflokki og áhorfendur velja glæsilegasta folaldið. Þá gefst færi á að skrá til leiks ungfola fædda 2011 og 2012.
Skráning fer fram um netfangið [email protected] eða í síma 857-5457 (Sigríður), tekið verður á móti skráningum til og með föstudagsins 7.febrúar. Þar skal gefa upp nafn, lit, foreldra, ræktanda og eiganda folaldsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH