Börn og unglingar í aðalhlutverki
Mynd/Dalli.is
Í kvöld kl 20 blása hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu í lúðra og sameinast um að halda fjölskylduvæna og hressilega sýningu í Reiðhöllinni í Víðidal í tilefni að Hestadögum í Reykjavík. Þar verður í boði fjölbreytt skemmtun þar sem íslenski hesturinn í aðalhlutverki.
„Gestir munu fá að fylgjast með börnum og unglingum sýna gæðinga sýna með stolti, ungmenni og fullorðnir sýna bæði klárhross og alhliðahross og að auki fá gestir innsýn í hluta af menntakerfi hestamanna, nefnilega Knapamerkin.
Einnig munum við fá sólóatriði frá heimsmeistaranum Guðmundi Einarssyni og syngjandi flott lokaatriði. Til að poppa enn frekar upp stemninguna í höllinni, ætla þeir Halli og Heiðar í Botnleðju að mæta með Pollapönk í farteskinu og spila og skemmta áhorfendum af sinni alkunnu snilld,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar.
Miðaverð er einungis kr. 1000 en frítt er fyrir 13 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH