Breytingar á reglugerð um merkingar búfjár
Matvælastofnun vekur athygli á breytingarreglugerð nr. 748/2016 á reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár sem tók gildi 19. ágúst sl. Hrossaræktendum er bent á að gerðar eru breytingar til að styrkja framkvæmd á einstaklingsmerkingum búfjár og þá sérstaklega hvað varðar örmerkingu hrossa.
Sett er inn ákvæði um að örmerki skulu viðurkennd af Matvælastofnun og að söluaðilar megi aðeins selja örmerki í hross til aðila sem hafa leyfi til örmerkinga hrossa.
Þá skulu allir umráðamenn búfjár og söluaðilar viðurkenndra merkja fyrir búfé vera skráðir í MARK, sem er miðlægt tölvukerfi sem heldur utan um merkingar búfjár, en MARK fluttist yfir til Matvælastofnunar um síðustu áramót þegar stjórnsýsluverkefni voru flutt frá Bændasamtökum Íslands.
Að síðustu bætist við nýtt ákvæði um að í MARK skuli skrá pöntun og sölu einstaklingsmerkja til umráðamanna búfjár og viðurkenndra merkingarmanna og upplýsingar um einstaklingsnúmer keyptra merkja. Sjá vef Matvælastofnunar, www.mast.is.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH