Breytt útfærsla á yfirlitssýningu kynbótahrossa á LM2012
Á fundi Fagráðs í hrossarækt þann 16. desember sl. var ákveðið að á landsmóti 2012 verði kynbótasýningin útfærð með eftirfarandi hætti:
Í forsýningu verði riðnar að hámarki 8 ferðir á beinni braut í stað 10.
Á yfirlitssýningu verði riðnir þrír hringir á hringvelli og ein ferð á beinni braut og verði dómur opinn líkt og tíðkast á yfirlitssýningum. Í hverju holli verði að jafnaði þrjú hross.
Einnig var ákveðið að framvegis verði það regla á öllum kynbótasýningum að hross sem metið hefur verið með áverkastig 2 í dómi hljóti hvorki dómsniðurstöður né verðlaunun. Ef áverki á stigi 2 verður á yfirlitssýningu hlýtur það hross ekki mögulega hækkun einkunnar né heldur verðlaunun jafnvel þó það hafi komið ósárt úr dómi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári