Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Opið fyrir skráningu í uppboðssæti Meistaradeildarinnar

  • 3. febrúar 2024
  • Fréttir
Næsta grein í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum er slaktaumatölt
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í slaktaumatölti sem fer fram fimmtudaginn 8. febrúar næstkomandi.
Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 5. febrúar kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is.

​Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar