Búið að skipa kynbótadómara fyrir HM í Herning

  • 15. mars 2021
  • Fréttir

Frá kynbótadómum á Heimsmeistaramóti. Mynd: Af Facebooksíðu HM.

Nú er búið að gefa út hvaða þrír kynbótadómarar munu skipa dómnefndina á Heimsmeistaramótinu í Herning í sumar, en þetta kemur fram á Facebooksíðu Heimsmeistaramótsins.
Það eru þau Elsa Albertdóttir (IS), Silke Feuchthofen (DE) og John Siiger Hansen (DK) sem  munu sjá um dómstörf á HM í sumar. Þar munu hæst dæmdu hrossin frá hverju aðildarlandi FEIF (sem eru boðin í verkefnið) mæta til leiks og getur hvert aðildarland sent að hámarki tvö hross í hvern aldursflokk. Sýnt er í eftirfarandi aldursflokkum stóðhesta og hryssna:
– 5 vetra
– 6 vetra
– 7 vetra og eldri
og geta kynbótahross einungis keppt fyrir fæðingarland sitt

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link