Christina Mai og Carrie Lyons Brandt hlutu verðlaun fyrir góðan árangur
Brautskráning frá Háskólanum á Hólum fór fram í gær í menningarhúsinu í Miðgarði. Alls var 41 einstaklingur brautskráður, þar af einn af tveimur brautum samtímis.14 með BA í ferðamálafræði og 14 með diplómu í viðburðastjórnun. 13 með BS í reiðmennsku og reiðkennslu en þetta er fyrsta brautskráningin af hinni nýju braut hestafræðideildar. Einn útskrifaðist svo með MS í sjávar- og vatnalíffræði.
Tvær stúlkur voru verðlaunaðar fyrir góðan árangur í reiðmennsku og reiðkennslu náminu, þær Christina Mai og Carrie Lyons Brandt.
Christina Mai, sem er frá Þýskalandi var með efstu meðaleinkunn af þeim nemendum sem útskrifuðust með BS í reiðmennsku og reiðkennslu og var sérstakelga verðlaunuð fyrir það. Hún féll fyrst fyrir íslenska hestinum í Þýskalandi ung að aldri og hefur því stundað hestamennsku í fjölda ára. Aðspurð um framhaldið segist hún það vera á planinu að fara í mastersnám. „Það er svo skemmtilegt með það þegar maður er komin með BS gráðu, að það opnast svo margir möguleikar, nú getur maður farið allstaðar í Evrópu í mastersnám. Fóðurfræði, íþróttasálfræði eða eitthvað hestatengt verður örugglega það sem ég tek í framtíðinni“, en hún verður að temja og þjálfa á Þingeyrum í Húnavatnssýslu í sumar.
Carrie Lyons Brandt tvítug yngismær sem útskrifaðist einnig í reiðmennsku og reiðkennslu hlaut hæstu samanlögðu einkunn úr reiðmennskuprófum yfir námsárin 3. Þess má geta að hún er annar bandaríkjamaðurinn og væntanlega yngsti nemandinn nokkurn tímann til þess að útskrifast sem reiðkennari frá Hólum. Carrie var kynnt fyrst fyrir íslenska hestinum þegar hún var 7 ára. „Það hafði alltaf verið draumur hjá mér síðan ég var lítil að fara á Hóla, allir sem ég lít upp til og eru mín fyrirmynd hafa farið þangað. Það sem mér fannst skemmtilegast við námið var að læra að kenna, koma hlutunum frá mér á sem skýrastan og skemmtilegastan hátt“. Framtíðin er nokkuð skýr hjá Carrie en hún er búin að stofna fyrirtæki úti í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að bjóða upp á tamningu, þjálfun, reiðkennslu og kynningu á íslenska hestinum.