Coca Cola þrígangsmót Spretts

  • 14. mars 2017
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Ný keppnisgrein og framlengdur skráningafrestur

Vegna fjölda áskoranna hefur verið bætt við fimmgangs-þrígangi á opna Coca-Cola þrígangsmóti Spretts sem fram fer næsta föstudag og hefst kl. 17.00 í Samskipahöllinni
Aðalstyrktaraðili mótsins er Coca-Cola, Vífilfell sem gefur öll verðlaun á mótinu.

Skráning hefur verið framlengd til kl. 20.00 þriðjudaginn 14. mars en nú hefur þrígangi fyrir alhliða hesta verið bætt við skráningamöguleikana en þá keppnisgrein má nú finna í Sportfeng undir: Þrígangur – Annað.
Skráningin fer fram á http://www.sportfengur.com <http://www.sportfengur.com/>.

Sýna á fegurðartölt, brokk og stökk. 
Það komast 7 í úrslit úr hverjum flokki.  Þrír dómarar dæma.
Keppt verður í fimm flokkum:

   * 17 ára og yngri
   * Minna vanir
   * Meira vanir
   * Opinn flokkur
   * Annað (þar er sýnt fegurðartölt, brokk og skeið)

Skráningargjald er kr. 3.500 á hest
Kvittun sendist á: [email protected]

Eins og fyrr segir er skráning opin til kl. 20.00, þriðjudaginn 14. mars.

Mótanefnd Spretts

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link