Dagskrá fimmtudags

  • 3. júlí 2013
  • Fréttir
Fjórðungsmótið hér á Kaldármelum er að komast í fullan gang. Nóg er að sjá fyrir áhugafólk um hesta og menn.

Nú er að hefjast annar dagur Fjórðungsmóts hér á Kaldármelum, en í gær var m.a. forkeppni í B-flokki, Stóðhestakeppni og dómar hryssna á kynbótabrautinni.

Nóg er að sjá fyrir áhugafólk um hesta og menn en Eiðfaxi mun fylgjast með dagskránni og birta fréttir og myndbönd af því sem fram fer.

Í dag eru forkeppnir í unglinga og barnaflokki, forkeppni í A-flokki og dómar stóðhesta á kynbótabrautinni.

Dagskrá dagsins er:

Fimmtudagur 4. júlí 2013

09:00 – 12:00 Forkeppni unglingaflokkur

13:00 – 15:30 Forkeppni barnaflokkur

15:30 – 20:30 Forkeppni A flokkur 

10:30 – 12:00 Dómar stóðhestar 4 vetra – á kynbótabraut

13:00 – 17:00 Dómar stóðhestar 5 vetra og eldri – á kynbótabraut

21:00 – 23:00 Trúbador í veitingatjaldi

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link