Landsamband hestamanna Djúkboxið leikur fyrir dansi á Uppskeruhátíð

  • 1. október 2024
  • Fréttir
Miðasölu lýkur föstudaginn 4. október

Nú styttist í uppskeruhátíð hestafólks. Hátíðin mun fara fram þann 12. október í Gullhömrum. Hátíðin tókst með eindæmum vel í fyrra og eigum við von á geggjuðu kvöldi þar sem við munum heiðra knapa fyrir frábæran árangur á árinu en líka skemmta okkur enda hvergi jafn gaman og þar sem hestafólk kemur saman.

Nú er komið í ljós að hin æðimagnaða stuðhljómsveit D J Ú K B O X I Ð mun leika fyrir dansi og er þá ekki hægt að segja annað en að skemmtidagskráin sé orðin heldur betur vel mönnuð. Kvöldinu munu stýra þeir Elli og Hlynur en saman mynda þeir frábæra heild og kunna heldur betur að halda uppi gleðinni syngjandi, stríðandi og skemmtandi. Hestakonan og söngdívan Fríða Hansen ætlar að taka nokkur lög og næstum því hestamaðurinn, brekkukóngurinn Emmsjé Gauti mun án efa fá einhverja til að dusta rykið af danstöktunum.

Gullhamrar eru annálaðir fyrir frábæran mat og glæsilega aðstöðu og hlökkum við mikið til að halda hátíðina okkar þar. Miðasala er í fullum gangi en við minnum áhugasama á að í fyrra seldist upp á hátíðina. Einnig þarf að hafa í huga að panta miða í tíma þar sem kokkarnir þurfa að vita hverju þeir eiga að búast við. Miðasölu lýkur föstudaginn 4. október.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar