Dómar hafnir í Spretti í Kópavogi
Ágústínus frá Jaðri hlaut 8,63 fyrir sköpulag
Kynbótasýning hófst í Spretti í Kópavogi í gær en dómarar á sýningunni eru þeir Eyþór Einarsson, Friðrik Már Sigurðsson og Gísli Guðjónsson.
Í gær voru sýnd 28 hross og fóru átta af þeim í fyrstu verðlaun. Efstur á sýningunni sem stendur er Ágústínus frá Jaðri en hann hlaut fyrir sköpulag 8,63, fyrir hæfileika 8,38 sem gerir 8,47 í aðaleinkunn. Það var Viðar Ingólfsson sem sýndi Ágústínus sem er 7 vetra undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Prúð frá Stóra-Hofi.
Viðar sýndi einnig efstu hryssuna, Dívu frá Kvíarhóli, Díva hlaut fyrir sköpulag 8,51, fyrir hæfileika 8,42 sem gerir í aðaleinkunn 8,46. Díva er 5 vetra undan Ský frá Skálakoti og Birtu frá Mið-Fossum
Hér er listi yfir hrossin sem hafa verið dæmd í Spretti, raðað eftir aðaleinkunn
| Hross á þessu móti | S. | H. | Ae. | Sýnandi |
| IS2015188338 Ágústínus frá Jaðri | 8.63 | 8.38 | 8.47 | Viðar Ingólfsson |
| IS2017287546 Díva frá Kvíarhóli | 8.51 | 8.42 | 8.46 | Viðar Ingólfsson |
| IS2016286761 Hrönn frá Árbæjarhjáleigu II | 8.56 | 8.39 | 8.45 | Viðar Ingólfsson |
| IS2015157017 Magni frá Ríp | 8.21 | 8.48 | 8.39 | Arnar Bjarki Sigurðarson |
| IS2018187052 Hljómur frá Auðsholtshjáleigu | 8.59 | 7.91 | 8.15 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir |
| IS2015281385 Heiður frá Ásbrú | 8.23 | 8 | 8.08 | Viðar Ingólfsson |
| IS2016288311 Hrafndís frá Miðfelli 5 | 7.86 | 8.18 | 8.07 | Arnar Bjarki Sigurðarson |
| IS2016187642 Eldur frá Laugarbökkum | 8.55 | 7.72 | 8.01 | Janus Halldór Eiríksson |
| IS2016258444 Hrafntinna frá Enni | 8.01 | 7.95 | 7.98 | Viðar Ingólfsson |
| IS2015288501 Frú frá Torfastöðum | 8.46 | 7.67 | 7.95 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| IS2016287463 Saga frá Kambi | 8.02 | 7.86 | 7.92 | Viðar Ingólfsson |
| IS2016281562 Kolbrá frá Minni-Völlum | 8.04 | 7.8 | 7.89 | Konráð Valur Sveinsson |
| IS2015287018 Hrafney frá Auðsholtshjáleigu | 7.88 | 7.88 | 7.88 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir |
| IS2016282646 Hátíð frá Þingási | 8.07 | 7.78 | 7.88 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| IS2016125042 Fýr frá Flekkudal | 8.23 | 7.65 | 7.85 | John Kristinn Sigurjónsson |
| IS2012256275 Hera frá Hólabaki | 7.98 | 7.77 | 7.84 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| IS2017285021 Þöll frá Geirlandi | 7.99 | 7.71 | 7.81 | Elvar Þormarsson |
| IS2014184970 Grandi frá Lynghaga | 7.77 | 7.78 | 7.78 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| IS2018187642 Tindur frá Laugarbökkum | 8.25 | 7.48 | 7.75 | Janus Halldór Eiríksson |
| IS2016235635 Kolbrá frá Grímarsstöðum | 8.14 | 7.52 | 7.74 | Elvar Þormarsson |
| IS2017282045 Bára frá Hrauni | 8.04 | 7.55 | 7.73 | Janus Halldór Eiríksson |
| IS2016287019 Vök frá Auðsholtshjáleigu | 8.06 | 7.49 | 7.69 | Dagbjört Skúladóttir |
| IS2017287515 Kempa frá Kampholti | 7.96 | 7.5 | 7.66 | Konráð Valur Sveinsson |
| IS2017187054 Hágangur frá Auðsholtshjáleigu | 7.97 | 7.45 | 7.63 | Dagbjört Skúladóttir |
| IS2016281844 Sóldís frá Heimahaga | 7.91 | 7.48 | 7.63 | John Kristinn Sigurjónsson |
| IS2015284652 Auður frá Vestra-Fíflholti | 7.72 | 7.45 | 7.55 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| IS2012281140 Gjóla frá Langholti | 7.82 | 7.32 | 7.5 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| IS2014288720 Nóta frá Ormsstöðum | 7.61 | 7.23 | 7.36 | Sigurður Vignir Matthíasson |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH