Dómgæsla rædd á ráðstefnu

  • 13. apríl 2012
  • Fréttir
Dómgæsla rædd á ráðstefnu

Rúmlega sextíu alþjóðlegir íþróttadómarar FEIF og íslenskir landsdómarar eru nú saman komnir í Harðarbóli í Mosfellsbæ þar sem alþjóðleg ráðstefna íþróttadómara fer fram.

Á ráðstefnunni eru tekin fyrir mörg af hitamálum íþróttakeppninnar, farið er ofan í siðfræði og siðareglur dómara og skýrsla um munnáverka er kynnt og rædd. Umræðan um hvernig eigi að dæma reiðmennsku er ofarlega í huga margra í ljósi þess að alþjóðasamtökin tileinka árinu 2012 fyrirmyndar reiðmennsku.

Í morgun tóku Gunnar Reynisson og Þorgeir Guðlaugsson til máls. Dómarar fylgdust svo með þremur knöpum, þeim Hönnu Rún Ingibergsdóttur, Eyjólfi Þorsteinssyni og Stian Pedersen, hita upp og ríða nokkur keppnisprógrömm sem þeir hafa svo dæmt og rætt.

Dagskrá ráðstefnunnar heldur áfram fram eftir kvöldi og á morgun.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link