Dregið í rásröð fyrir Meistaradeildina

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum Mynd: Carolin Giese
Gæðingalistin verður haldin á föstudaginn í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli þann 14. mars.
Í fyrra var það Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Flóvent frá Breiðsstöðum sem vann greinina en gaman verður að sjá hvaða knapar og hestar munu mæta á föstudaginn. Fylgstu með í kvöld þegar dregið verður í rásröð kl. 20:00 á Eiðfaxa í opinni dagskrá.
Eins og áður er frítt inn í höllina en frábærar veitingar eru í boði. Þeir sem panta fyrir fram á hlaðborðið fá í kaupbæti frátekið sæti á besta stað í stúkunni en húsið opnar kl. 17:00. Pantanir fara fram HÉR.
Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV en það er um að gera að tryggja sér áskrift sem fyrst.