Kynbótasýningar Efsti hesturinn ræktaður á Íslandi

  • 6. ágúst 2023
  • Fréttir

Höfði frá Bergi, sýnandi Þorgeir Ólafsson Mynd: Birgitta Bjarnad.

Flokkur 5 vetra stóðhesta á Heimsmeistaramótinu í Hollandi

Kynbótasýningar hafa verið partur af Heimsmeistaramótunum síðan 1985 en þá var í fyrsta sinn dæmd hross á Evrópumóti. Hvert aðildarland FEIF hefur rétt á að senda tvö hross í hverjum aldursflokki og mega hrossin taka þátt bæði í íþróttakeppninni og vera sýnd á kynbótasýningunni. Hrossin mega einungis vera sýnd fyrir það aðildarland sem það er fætt í.

Hryssur og stóðhestar eru sýnd í sitthvorum flokknum og eru allir aldursflokkar nema 4 vetra hross á Heimsmeistaramótum. Í ár verður sú nýbreytni að ekki verða hrossin byggingardæmd á mótinu heldur fylgir einkunnin með þeim inn á mótið.

Á síðasta móti stóðu íslensk fædd hross efst í fjórum flokkum af sex. Svíar áttu efsta fimm vetra stóðhestinn, Kolgrím Grímsson från Gunvarbyn, en hann kemur aftur fram á þessu Heimsmeistaramóti en hann verður sýndur í elsta flokki stóðhesta.

Fimm vetra flokkurinn eru fámennustu flokkarnir en þrír fimm vetra stóðhestar verða sýndir á mótinu. Ef skoðaðar eru aðaleinkunnir þeirra fyrir mótið er efstur Höfði frá Bergi efstur með 8,35 í aðaleinkunn.

240)
SE2018122021 Mótor från Smedjan – SVÍÞJÓÐ
Ræktandi: Jesper Eurenius, Pernilla Eurenius
Eigandi: Jesper Eurenius kt: SE0000117332, Pernilla Eurenius kt: SE0000118973
F.: SE2009110329 Viking från Österåker
M.: SE2003202373 Minning från Margaretehof
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,0 – 7,0 – 8,5 – 8,0 = 8,33
Sýnandi: Vignir Jónasson

Aðaleinkunn fyrir mót: 8,17

224)
DE2018134274 Reynir vom Kronshof – ÞÝSKALAND
Ræktandi: Kronshof GbR
Eigandi: Egger-Meier Anja, Kronshof GbR
F.: DE2010163007 Óðinn vom Habichtswald
M.: DE2009234195 Gígja vom Kronshof II
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 9,0 – 7,5 – 8,5 – 7,5 = 8,32
Sýnandi: Frauke Schenzel

Aðaleinkunn fyrir mót: 8,11

205)
IS2018137486 Höfði frá Bergi – ÍSLAND
Ræktandi: Anna Dóra Markúsdóttir
Eigandi: Anna Dóra Markúsdóttir
F.: IS2012188158 Apollo frá Haukholtum
M.: IS2003237209 Hilda frá Bjarnarhöfn
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,0 – 7,5 – 8,5 – 7,5 = 8,23
Sýnandi: Þorgeir Ólafsson

Aðaleinkunn fyrir mót: 8,35

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link