Eiðfaxi og Hestablaðið í eina sæng

  • 1. febrúar 2013
  • Fréttir
Markmiðið að auka þjónustu við áskrifendur

Útgáfa Eiðfaxa og Hestablaðsins hefur verið sameinuð í eitt öflugt útgáfufélag.  Með sameiningunni verður markmiðið að auka þjónustu við áskrifendur.  Að sama skapi verður erlend útgáfa styrkt, íslenska hestinum og íslenskri hestamennsku til hagbóta.

 Helstu atrið sem snúa að bættri útgáfu eru:
 -áskrifendur fá blað sent til sín mánaðarlega
-annan hvern mánuð verður blaðið á tímaritsformi og hinn á dagblaðsformi
-stefnt er að þvi að sérblöð komi út kringum sérstaka viðburði eins og Landsmót
 Með þessu teljum við að blaðaumfjöllun um hestamennsku og íslenska hestinn eflist til muna, betra tækifæri gefst til að kryfja einsk mál til mergjar.  Taka mál til umfjöllunar sem efst eru á baugi í hestamennskunni hverju sinni á gagnrýninn en um leið uppbyggilegan hátt. Sömuleiðis mun sameinuð útgáfa geta eflt enn frekar vefmiðlun á efni um hestamennsku, en þar hefur Eiðfaxi farið fremst í flokki á Íslandi undanfarin ár, enda býr blaðið að einstöku gagnasafni um hestamennsku og hestinn okkar.
 Ritsjórn blaðanna verður í umsjón Gígju Daggar Einarsdóttur og Jens Einarssonar, ásamt rítnefnd.
 Eiðfaxi hefur nú flutt starfsemi sína upp á skrifstofur Viðskiptablaðsins/Hestablaðsins að Nóatúni 17, 105 rvk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link