Eiðfaxi – vefútgáfan

  • 28. febrúar 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi – vefútgáfan

Fyrsta tölublað Eiðfaxa á árinu er að koma úr prentsmiðjunni og fer til áskrifenda og í verslanir strax og við höfum fengið það í hendurnar. Vefútgáfan er hinsvegar komin á netið og geta allir áskrifendur lesið hana þar til blaðið sjálft er komið til þeirra..

Hvernig geta áskrifendur Eiðfaxa og Hestablaðsins nálgast vefútgáfuna?

Áskrifendur Eiðfaxa ættu flestir að hafa notendanafn og aðgangsorð, sem er í gildi. Vef Hestablaðsins,  www.hestabladid.is, hefur hins vegar verið lokað og geta áskrifendur Hestablaðsins valið sér nýtt notendanafn og aðgangsorð (eða notað gamla) og sent það í tölvupósti á: [email protected]. Áskrifendur munu síðan fá senda staðfestingu í tölvupósti þegar aðgangurinn hefur verið virkjaður.

Virðingarfyllst,

áskriftardeild Eiðfaxa og Hestablaðsins.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link