Eiðfaxi veitir viðurkenningu á Skeifudegi
Eiðfaxi hefur um langt árabil veitt verðlaun fyrir námsárangur á Skeifudegi Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.
Til lengri tíma veitti Eiðfaxi viðurkenningu fyrir hirðingu hrossa.
Í ár veitir Eiðfaxi hins vegar viðurkenningu til þess nemanda sem náð hefur besta árangri í bóklegum fögum á hrossaræktarbrautum skólans.
Verðlaunin eru glæsilega töltstytta frá Ís-spor.
Skeifudagurinn fer fram á laugardag í reiðhöllinni að Mið-Fossum í Borgarfirði og hefst hátíðin með hópreið kl. 13.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH