Eiðfaxi Vor í prentvélunum

  • 24. júní 2020
  • Fréttir
Stútfullur af skemmtiefni og fróðleik

Nú er í prentun næsta tímarit Eiðfaxa er heitir Eiðfaxi Vor og er það stútfullt af efni, tilvalið fyrir hestamanninn að taka eintak með sér í ferðalagið. Tímaritið fer í dreifingu til áskrifenda Eiðfaxa í næstu viku.

Eiðfaxi Vor er örlítið seinna á ferðinni en upprunalegar áætlunir gerðu ráð fyrir en ástandið í heiminum undanfarnar vikur og mánuði settu strik í reikninginn hjá Eiðfaxa eins og öðrum en nú virðumst við vera á beinu brautinni og allt komið á fullt.

Á meðal efnistaka í Eiðfaxa Vor má nefna.

Samantekt um það hvað það kostar að eignast hross í 1.verðlaun í kynbótadómi þegar allt er tekið saman folatollur, uppeldi, tamningagjöld, sýningargjöld o.fl.

Albert Jónsson er hestamönnum öllum vel kunnugur og er viðamikið viðtal við hann í tímaritinu þar sem hann fer yfir lífshlaupið í hestamennskunni og segir ýmsar sögur frá liðinni tíð.

Vakri-Skjóni er á sínum stað með skemmtilegan fróðleik og viðtöl og umfjöllun fyrir yngri lesendur Eiðfaxa.

Þórður Þorgeirsson segir frá mörgum af eftirminnilegustu hrossum sem hann hefur sýnt í kynbótadómi í gegnum tíðina.

Þetta ásamt ýmsu fleiru má finna í næsta tímariti Eiðfaxa Vertu áskrifandi að Eiðfaxa og styddu við umfjöllun um íslenska hestinn og öllu því sem honum fylgir með því að smella hér.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link