Eins og villta vestrið
Léttismenn gerðu hrossarekstur að umræðuefni félagsfundar í byrjun mánaðarins. Mikil hefð er fyrir rekstri hjá Akureyringum en svo virðist sem reglum sé ekki framfylgt. Sigfús Helgason segir á vefsíðu sinni að í Breiðholtshverfi ríki ófremdarástand. Þar séu laus hross á dragstökki um allt hverfið. Ástandinu líkir hann við villta vestrið. Á fundi Léttismanna var ákveðið að hnykkja á óskráðum reglum um rekstur. Skulu hesteigendur án undantekninga teyma hrossa sín í rekstrargerði og aldrei leggja af stað með rekstur eftir kl. 10. Þá er mælst til þess að atvinnumenn nýti virka daga til rekstrar og láti hinum almenna hestamanni helgarnar eftir.
Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH