Einstök vinátta á Stórsýningu Fáks

  • 29. apríl 2011
  • Fréttir
Einstök vinátta á Stórsýningu Fáks

 

Stórsýning Fáks fer fram á laugardaginn kl. 21 í reiðhöllinni í Víðidal. Dagskráin óðum að taka á sig mynd að fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar:

„Boðið verður upp á mikinn og góðan hestakost þar sem m.a. koma fram Íslandsmeistarar Fáks, sveiflandi kátar Sörlastelpur og fljúgandi vakrir alhliðahestar. Einnig verður boðið upp á skemmtilegt atriði sem kallast „Einstök vinátta“ þar sem Svanhvít Gísladóttir og Númi frá Lindarholti sýna skemmtileg samspil manns og hests. Þau komu fram á Vesturlandssýningunni um daginn og vöktu mikla lukku og gleði og við efumst ekki um að svo verður einnig í Víðidalnum.“

Miðasala á sýninguna fer fram við innganginn annað kvöld, miðaverð er kr. 2.000 og frítt fyrir 12 ára og yngri. Að sýningu lokinni verður svo bjórkvöld í félagsheimili Fáks.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link