Ekki sauðnaut heldur hestur

  • 26. september 2011
  • Fréttir
Hormónabreytingar valda breytingum á feldi

Þessi loðna skepna hér á myndinni er ekki sauðnaut, þótt útlitði beri það með sér. Þetta er hestur, en svona óvenjulega mikið loðinn. Áskrifandi Hestablaðsins sem var á ferð í Borgarfirði ók fram á þennan hest fyrir skömmu og brá nokkuð í brún. Þetta er þó ekki einsdæmi. Nokkrum sinnum kemur það fyrir hross, einkum á miðjum aldri, eða í kjölfar slyss eða áfalls, að hormónabrengl á sér stað í nýrnahettunum, sem orskar þennan sjúkdóm. Hross sem fyrir þessu verða geta lifað fram í háa elli og fóðrast eðlilega, þótt vissulega volgni þeim nokkuð á heitustu sumardögum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link