Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter 2023 Elva og Goði hlutskörpust

  • 25. mars 2026
  • Fréttir
Niðurstöður úr gæðingalistinni í Meistaradeild ungmenna og TopReiter

Keppni í gæðingalist hjá Meistaradeild Ungmenna og Topreiter fór fram í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ föstudagskvöldið 13.mars. Alls mættu til leiks 39 pör og því fróðlegt og spennandi að fylgjast með þessum pörum, takast á við krefjandi verkefni.
Keppnin var afar jöfn og spennandi, þar sem margir knapar sýndu glæsilegar sýningar og ljóst að framtíð íslenskrar hestamennsku er björt með þennan sterka hóp ungra knapa.

„Við viljum færa Hestamannafélaginu Herði kærar þakkir fyrir frábært samstarf og Blíðubakkahúsinu sérstakar þakkir fyrir lánið á reiðhöllinni til upphitunar sem skipti sköpum fyrir gott skipulag mótsins,“ segir í tilkynningu frá stjórn Meistaradeildar ungmenna. „Styrktaraðilar Gæðingalistarinnar voru Heimahagi og Hraunhamar fasteignasala og þökkum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.“

Það voru þau Elva Rún Jónsdóttir og Goði frá Garðabæ sem báru sigur úr býtum með sýningu uppá 7,17. Í öðru sæti varð Eva Kærnested og Styrkur frá Skák með einkunnina 7.0. Stutt á eftir í þriðja sæti voru það Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Djásn frá Skógarnesi með einkunnina 6,90.

Myndband á sýninguna

Kvöldið gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig. Mikil nákvæmisvinna er í undirbúning fyrir gæðingalist og má lítið útaf bera. Þá varð til þess þetta kvöld að ekki fengu allir knapar sína lokaeinkunn og þurfti því stjórn tíma til að koma einkunnum og skjölum í rétt horf áður en niðurstöður gátu verið birtar með fullri vissu að allt sé rétt. Því fór svo að engin verðlaun voru veitt þetta kvöld en verður afhent í næstu keppni sem verður fimmtudaginn 26.mars þegar fram fer keppni í slaktaumatölti í Samskipahöllinni hjá Hestamannafélaginu Sprett.

Niðurstöður liggja því svo fyrir
1
Elva Rún Jónsdóttir – Goði frá Garðabæ
Hjarðartún
7,17
2
Eva Kærnested – Styrkur frá Skák
Miðás/Miklholt
7
3
Lilja Rún Sigurjónsdóttir – Djásn frá Skógsnesi
Miðás/Miklholt
6,9
4
Fanndís Helgadóttir – Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum
Helgatún/Hestaval
6,87
5
Guðný Dís Jónsdóttir – Hraunar frá Vorsabæ 2
Hjarðartún
6,77
6
Sara Dís Snorradóttir – Kvistur frá Reykjavöllum
Miðás/Miklholt
6,77
7
Kolbrún Sif Sindradóttir – Ljósvaki frá Valstrýtu
Helgatún/Hestaval
6,77
8
Ragnar Snær Viðarsson – Bylur frá Kvíarhóli
Kastalabrekka
6,67
9-11
Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir – Garri frá Bessastöðum
Miðás/Miklholt
6,47
9-11
Anton Óskar Ólafsson – Gná frá Hólateigi
Hestvit/Lækjarbrekka
6,47
9-11
Dagur Sigurðarson – Mórall frá Hlíðarbergi
Kastalabrekka
6,47
12
Ída Mekkín Hlynsdóttir – Marín frá Lækjarbrekku 2
Hestvit/Lækjarbrekka
6,43
13-14
Snæfríður Ásta Jónasdóttir – Feykir frá Strandarhöfði
Hjarðartún
6,4
13-14
Elísabet Vaka Guðmundsdóttir – Birta frá Bakkakoti
Brekka/Einhamar
6,4
15-18
Sigurbjörg Helgadóttir – Sólon frá Sælukoti
Helgatún/Hestaval
6,3
15-18
Glódís Líf Gunnarsdóttir  – Hallsteinn frá Þjóðólfshaga
Armar/ E.Skúlason
6,3
15-18
Vigdís Anna Hjaltadóttir – Árvakur frá Minni-Borg
Holtsmúli
6,3
15-18
Steinunn Lilja Guðnadóttir – Hamingja frá Þúfu í Landeyjum
Hjarðartún
6,3
19
Hrafnhildur Svava Sigurðardóttir – Smyrill frá V-Stokkseyrarseli
Husky Iceland/Réttverk
6,17
20
Helena Rán Gunnarsdóttir – Goði frá Ketilsstöðum
Armar/ E.Skúlason
6,13
21
Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson – Muninn frá Bergi
Kastalabrekka
6,03
22
Unnur Erla Ívarsdóttir – Víðir frá Tungu
Brekka/Einhamar
5,97
23-25
Helgi Freyr Haraldsson – Hrynjandi frá Strönd
Bobcat
5,93
23-25
Elín Ósk Óskarsdóttir – Brák frá Lækjarbrekku
Hestvit/Lækjarbrekka
5,93
23-25
Ingunn Rán Sigurðardóttir – Svört frá Einhamri
Brekka/Einhamar
5,93
26
Lilja Rós Jónsdóttir – Safír frá Götu
Grindjánar
5,9
27-28
Kristín Karlsdóttir  – Kopar frá Klauf
Husky Iceland/Réttverk
5,87
27-28
Ísak Ævarr Steinsson – Hulda frá Hjallanesi 2
Holtsmúli
5,87
29
Friðrik Snær Friðriksson – Garpur frá S-Skörðugili
Kastalabrekka
5,73
30
Svandís Aitken Sævarsdóttir – Vösk frá Dalbæ
Helgatún/Hestaval
5,67
31
Tristan Logi Lavender – Svarthöfði frá Efri-Skálateigi 1
Holtsmúli
5,63
32-34
Anika Hrund Ómarsdóttir – Dáðhugi frá Álfhólum
Holtsmúli
5,53
32-34
Tara Lovísa Karlsdóttir – Hrímnir frá Hvammi 2
Husky Iceland/Réttverk
5,53
32-34
Hildur María Jóhannesdóttir – Hervar frá Svignaskarði
Brekka/Einhamar
5,53
35
Júlía Björg Gabaj Knudsen – Medina frá Ármóti
Bobcat
5,37
36
Kristján Hrafn Ingason – Úlfur frá Kirkjubæ
Bobcat
5,2
37
Ásdís Elma Ágústsdóttir – Sváfnir frá Miðsitju
Grindjánar
4,6
38
Halldóra Rún Gísladóttir – Héla frá Vík
Grindjánar
4,57
39
Sigrún Björk Björnsdóttir – Elva frá Staðarhofi
Armar/ E.Skúlason
4,17

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link