Equsana áhugamannadeild Spretts

  • 8. janúar 2020
  • Fréttir
Þessi skemmtilega deild hefst 6. febrúar!

Það styttist heldur betur í að Equsana áhugamannadeild Spretts rúlli af stað þetta árið og er þetta hvorki meira né minna en sjötta keppnisár deildarinnar. Equsana verður áfram aðal styrktaraðili deildarinnar þriðja árið í röð og þökkum við þeim kærlega fyrir.

Fyrsta keppnisgrein er fjórgangur og verður haldin fimmtudaginn 6. febrúar í Samskipahöllinni í Spretti.

Dagsetningar móta 2020 eru eftirfarandi:
Fimmtudagur 6. febrúar fjórgangur
Fimmtudagur 20. febrúar fimmgangur
Fimmtudagur 5. mars slaktaumatölt og flugskeið gegnum höllina
Fimmtudagur 19. mars tölt – lokamótið

Á næstu dögum munum við kynna liðin og liðsmenn þeirra nánar.
Þau lið sem taka þátt eru:

Barki
Eldhestar
Hofsstaðir/Úrvalshestar/Votamýri
Stjörnublikk
Heimahagi
Hest.is
Vagnar og Þjónusta
Lið Hafdísar
Purenorth
Tolthestar
Lið Sverris
Lið Hraunhamar/Leiknir
Landvit
Voot-liðið
Geirland/Varmaland
Skuggi

 

(Nöfn liðanna eru birt með fyrirvara um breytingar)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link