Er kreppan afstaðin í hestamennskunni?
Talsvert tal hefur verið um þá kreppu sem verið hefur í hestamennskunni að undanförnu en hestamenn líkt og aðrir hafa ekki farið varhluta af því hruni sem varð hér á landi.
Svo virðist sem greinin sé að taka við sér ef marka má þá framkvæmdagleði sem ríkir í greininni. Ekki færri en sjö reiðhallir eru nýbyggðar eða í byggingu, talsverð uppbygging hefur orðið bæði á Efri-Rauðalæk og á Ingólfshvoli auk nýbyggingar nokkurra hesthúsa.
Af þessum framkvæmdum má nefna nýja reiðhallir í Norðfirði, Holtsmúla, Húsavík, Kjarri og Hornafirði.
Auk þess er Jón Árnason og fjölskylda að byggja upp reiðhöll og hesthús á jörðinni Fellsöxl undir Akrafjalli, en þau höfðu áður reist glæsilega aðstöðu á Akranesi. Sigursteinn Sumarliðason byggir nú reiðhöll við hesthús sitt á Selfossi. Framkvæmdir eru við hesthús og viðbyggingu á Syðri-Gegnishólum en þar að auki er ein glæsilegasta reiðhöll landsins að rísa á svæði hestamannafélagsins Spretts.
Þessi reiðhöll hjá Spretti bætir enn glæsilega aðstöðu félagsins og telja margir líklegt að sótt verði um landsmót þar í náinni framtíð.
Þessar framkvæmdir eru jákvæðar vísbendingar um að greinin sé að rísa upp úr þeim öldudal sem hún hefur verið í að undanförnu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH