Erlendir hestamenn segja sína skoðun á Meistaradeildinni

  • 17. apríl 2021
  • Fréttir

Henning Drath ritstjóri Isibless er einn af þeim sem svarar.

AlendisTV hefur unnið að gerð efnis um Meistaradeildina í hestaíþróttum í vetur, auk þess að færa hestamönnum keppnina heim í stofu í beinu streymi.

Framundan er lokamótið í Meistaradeildinni og af því tilefni tók Alendis púlsinn á fjórum þekktum hestamönnum í Evrópu og spurði þá ýmissa spurninga um deildina. Þetta eru þau Filippa Montan, Nils Christian Larsen, Karly Zingsheim og Henning Drath.

Myndböndin eru í tvennu lagi, en í fyrra myndbandinu eru þau spurð að ýmsu er tengist Meistaradeildinni almennt og í því seinna þeirra spádómur um það hver sigrar tvær síðustu keppnisgreinarnar auk einstaklings- og liðakeppninnar.

Skemmtilegt efni sem eykur á spennuna fyrir lokamótið í Meistaradeildinni.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link