Ert þú efnilegur reiðmaður ?
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands auglýsti eftir umsóknum í Reiðmanninn á þremur nýjum stöðum í vor, á Akureyri, Miðfossum og á Flúðum. Fjöldi umsókna bárust og fór það svo að við bætast nýir hópar á Selfossi og í Víðidal. Fyrir eru í náminu, og fara inn á annað ár í haust, nemendahópar á Hellu og í Víðidal. Alls 24 nemendur á öðru ári og áætlað um 60 manns á fyrsta ári. Þar sem nokkrar breytingar hafa orðið á högum fólks hafa losnað sæti í Reiðmanninn á Flúðum og á Akureyri! Þeir sem hafa verið á biðlista ganga að sjálfssögðu fyrir en ef einhverjir hafa áhuga er um að gera að sækja strax um í þessa hópa. Allar upplýsingar um námið er á www.lbhi.is/namskeid undir Reiðmaðurinn en þar má einnig finna umsóknareyðublað, eða hafa samband við Ásdísi Helgu Bjarnadóttur hjá Endurmenntun LbhÍ í síma 433 5000 eða endurmenntun@lbhi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH