Eru að halda 11 hryssum á ári

  • 7. október 2023
  • Fréttir
Viðtal við ræktendur í Miðkoti

Eiðfaxi heldur áfram að kynnast hrossaræktarbúum um land allt. Hrossaræktarbúið Miðkot í Rangárþingi Eystra. Miðkot er 300 ha. jörð og þar búa hjónin Ólafur Þórisson og Sarah Maagaard Nielsen ásamt börnum sínum þremur, Viktori Mána, Jakobi Frey og Evu Dögg.

Á búinu eru stunduð hrossarækt ásamt því að vera með 100 kindur, 3 hunda og einn kött. Í sumar fengu þau 11 folöld undan Kiljani frá Miðkoti, Fáfni frá Miðkoti og Ljúf frá Torfunesi.

“Í sumar héldum við 11 hryssum og fóru flestar undir Fáfni en við notuðum einnig þá Kiljan frá Miðkoti, Ljósvaka frá Valstrýtu, Hyl frá Flagbjarnarholti, Skálk frá Koltursey, Aspar frá Hjarðartúni og Fróða frá Flugumýri,” segir Ólafur.

Í sumar voru sýnd fimm hross úr ræktuninni, þrjár hryssur og tveir stóðhestar, en Ólafur sýnir öll hrossin þeirra sjálfur.

“Gekk vel með Fáfnir frá Miðkoti sem hlaut fyrstu verðlaun eða 8,14 í aðaleinkunn en hann er 5 vetra klárhestur. Hin gengu ekki upp eins og lagt var upp með en skemmtileg hross og gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni,“ segir Ólafur en þau hafa einnig verið að keppa á hrossum úr sinni ræktun og sem dæmi þá keppti Sarah á Djörfungu frá Miðkoti á Selfossi og Hellu í vor og komst í A-úrslit í fjórgangi og tölti á báðum mótum. Einnig sigruðu þær B-flokk áhugamanna á Gæðingamóti Geysis.

Frumtamningar eru ekki byrjaðar á bænum en þau taka alltaf frí frá tamningum og útreiðum frá byrjun september fram í miðjan október.

“Þá mun húsið fyllast af frumtamningartrippum og keppnishrossum en við verðum með um 40 hross á járnum. Við erum mjög spennt fyrir fjórum hrossum sem eru að koma í tamningu núna í haust. Stóðhestur undan Ljósvaka og Atorku frá Miðkoti og þrjár hryssur; undan Óskari frá Breiðstöðum og Spá frá Miðkoti, undan Pensil frá Hvolsvelli og List frá Tjarnarlandi og Stæl frá Miðkoti og Kæti frá Þúfu í Landeyjum.”

Aðspurð um hvað hafi staðið upp úr á árinu telja þau upp nokkur atriði.

“Fáfnir fór í flottann dóm í kynbótasýningu og svo gerði hann það líka gott í fjórgangi og fór í 6,63 í einkunn. Síðan komst Jakob Freyr á Sólbirtu frá Miðkoti í A-úrslit í V2 í barnaflokki á sínu fyrsta Íslandmóti. Síðan að sjálfsögðu frábærar hestaferðir til fjalla og frábær hestaferð á Löngufjörum með fjölskyldunni og í góðra vina hópi,” segja þau að lokum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link