Eru hestaíþróttir ekki íþrótt?
Kæru Hestamenn
Nú hafa íþrótta fréttaritarar enn einu sinni komið sér saman um
Val à íþróttamanni (konu) ársins. Nöfn 10 manna og kvenna er á listanum .
Allt er þetta mjög frambærilegt fólk sem örugglega, hver á sína vísu, eiga tilnefninguna skilið. Mér brá hinsvegar í brún að sjá ekki nafn Jóhanns R. Skúlasonar á listanum en hann vann það afrek á Heimsleikunum í Berlín í sumar að vinna til hvorki meira né minna en þrennra gullverðlauna! Er han þá, ef mér skjátlast ekki, kominn með samtals 13 heimsmeistaratitla fyrir utan titla fyrir kynbótasýningar.
Hafa íþróttafréttamenn ekki fylgst með því sem er að gerast ? eða líta þeir á hestaíþróttir öðrum augum en að kasta keilu, lyfta lóðum eða sparka bolta.
Þetta afrek Jóhanns verður seint bætt og hefur ferill hans síðustu 20 árin verið með ólíkindum !
Engin önnur íþróttagrein, sem iðkuð er undir merkjum ÍSÍ, en hestaíþróttin, getur státað af þremur heimsmeistaratitlum í ár sem einn og sami maðurinn landaði.
Skàl fyrir því og skàl fyri Jóa Skúla!
Kóki
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH