Eyjólfur marði sigur
Þá er fjórgangsúrslitum lokið en við tekur a úrslit í fimmgangi. Efstur var Eyjólfur Þorsteinsson á Hlekk frá Þingnesi og annar var Sigurður Sigurðarson á Loka frá Selfossi. Það gat ekki munað minna en það munaði 0.03 á þeim. Það er minnsti mögulegi munur en það er 0.5 hjá einum dómara sem ræður úrslitunum.
Eyjólfur Þorsteinsson varð einnig samanlagður fjórgangssigurvegari.
A-úrslit í fjórgangi opnum flokki:
1 Eyjólfur Þorsteinsson / Hlekkur frá Þingnesi 8,00
2 Sigurður Sigurðarson / Loki frá Selfossi 7,97
3 Elin Holst / Frami frá Ketilsstöðum 7,57
4 Ólafur Ásgeirsson / Hugleikur frá Galtanesi 7,53
5 Lilja S. Pálmadóttir / Mói frá Hjaltastöðum 7,47
6 Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 6,40
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH