Fákar og fjör á laugardaginn

  • 23. apríl 2024
  • Fréttir
Forsala miða hefst á morgun í Lílandi Akureyri

Sýningin Fákar og fjör verður í reiðhöll Léttis á Akureyri laugardaginn 27. apríl.

Húsið opnar kl. 17:30 en sýningin sjálf byrjar 19:30. Kl. 23:00 verður síðan ball í Skeifunni en Færibandið leikur fyrir dansi. Hægt verður að kaupa glæsilegan kvöldverð í Skeifunni fyrir sýningu á kr. 3.500.

Glæsilegir stóðhestar, skrautreið, alhliðahross, flugskeið, klárhross, ræktunarbú, bjartasta vonin, grín og margt fleira skemmtilegt,“ kemur fram í auglýsingu viðburðarins.

Forsala miða verður í Líflandi Akureyri frá 24. apríl og í Léttishöllinni frá 14:00 á sýningardegi 27. apríl. Sýning og ball kostar 4.500 kr. en miði á ballið er 2.500 kr.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar