Fáksmenn fegra dalinn
Undirbúningur fyrir Landsmót 2012 er farið í gang enda er í mörg horn að líta fyrir aðstandendur Landsmóts og mótshaldaranna hjá hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á félagssvæði Fáks í ár og er Víðidalurinn farinn að taka á sig nokkuð hátíðlega mynd. Búið er að undirbúa stúkusvæði og lengja áhorfendabrekkuna við Hvammsvöll og útbúa tjaldsvæði á melnum sunnan við kappreiðavöllinn. Þá er verið að lagfæra vegi og fegra dalinn með tyrfingum og trjágróðursetningu.
Hesthúseigendur í Víðidal fengu í sumar orðsendingu þar sem þeir eru hvattir til að snyrta í kringum hesthúsin sín með lagfæringum,málun og hreinsun til að svæðið skarti sínu fegursta á Landsmóti. Að því tilefni gerðu Fáksmenn samning við tvö málningarfyrirtæki og gefst hesthúseigendum kostur á að kaupa málningu á vænum afslætti.
Ótalmargir hesthúseigendur hafa tekið áskoruninni og sést hefur til margra í Víðidalnum í sumar að dytta að, hreinsa og mála. Í kvöldsólinni í gær rakst tíðindakona Eiðfaxa á nokkra dugmikla hestamenn sem höfðu brugðið sér í málningagallann og voru í óðaönn að mála nýtt tréverk sem sett verður á hesthúsalengju þeirra við C-tröð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum