FEIF Youth Camp í Finnlandi næsta sumar
FEIF Youth Camp munu verða haldnar 14. til 17. júlí í suðurhluta Finnlands. FEIF Youth Camp eru æskulýðsbúðir fyrir krakka á aldrinum 13 til 17 ára.
The Equine College nálægt Ypäjä býður upp á þjálfun fyrir alls kyns hestatengdar vinnustéttir, þar á meðal reiðkennarar, söðlasmiði og járningarmenn. Að þessu sinni mun FEIF Youth Camp einblína á að fá innsýn inn í (finnska) hestaheiminni, þar sem boðið verður upp á alls kyns bóklega kennslu og vinnustofur.
Þátttakendur í búðunum þurfa ekki að koma með eigin hesta, en dagskráin felur í sér að minnsta kosti einn reiðtúr út í finnsku sveitina. Sameiginlegt tungumál á meðan á búðunum stendur verður enska. Formlegt boð með frekari upplýsingum mun koma út snemma á nýju ári. Allar skráningar verða í höndum Æskulýðsleiðtoga aðildarfélaga FEIF.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH