Felicia og Safír gulltryggðu Svía
Dagskrá World toelts er að ná hámarki. Í síðustu ungmennaatlögunni var keppt í tölti. Aftur voru fjórir knapar frá jafnmörgum löndum mættir til leiks.
Efst eftir hæga töltið var hin danska Caroline Poulsen á Helga frá Stafholti, með 7,17 í einkunn. Þegar keppendur áttu að sýna hraðabreytingar var Helgi eitthvað ósáttur og stökk með Carolinu um völlinn. Þau fengu ekki einkunn og yfirgáfu brautina.
Öruggur sigurvegari var Felicia Lindblom frá Svíþjóð á Safír vom Lindenhof. Löndin hafa skipt verðlaunum nokkuð bróðurlega á milli sín, en Svíar sigruðu í tveimur greinum af fjórum, danir fengu eitt gull og norðmenn eitt.
1.Felicia Lindblom / Safir vom Lindenhof / SWE 6,44
6,0 – 6,5 – 6,83
2. Kim Dalfuß / Greifi frá Myrarloni / GER 6,22
6,0 – 6,0 – 6,67
3. Stine Smidtsrød / Jökull frá Straðartungu / NOR 5,17
4,5 – 4,67 – 6,33
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH