Fimm kynbótasýningar í Þýskalandi 2022
Dagsetningar hafa verið ákveðnar fyrir kynbótasýningar í Þýskalandi árið 2022 en þær verða fimm talsins. Níu sýningar voru skipulagðar fyrir árið 2021 en þrjár af þeim voru felldar niður.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á staðarvali en staðir á borð við Ellringen og Wurz, sem báðir eru orðnir reynslumiklir staðir hvað kynbótasýningarhald varðar, eru ekki á listanum. Í tilkynningu frá ræktunarnefnd IPZV kemur fram að félagið vilji reiða sig meira á sýningarhald á stöðum sem reknir eru af hestamannafélögum frekar en búgörðum. Þeir vilja meina að þetta muni taka út það forskot sem „heima“hestar séu með vegna þess hversu vel þeir þekki svæðið, enda þjálfaðir þar.
Í frétt Isibless um málið kemur fram að ákvörðunin veki undran þar sem búgarðarnir eru margir orðnir mjög vanir sýningarhaldi sem hefur tekist mjög vel í gegnum árin og að það voru þeir sem komu kynbótasýningum í Þýskalandi á laggirnar. Einnig kemur þar fram að breytingin sem á sér stað á svæðinu; hljóðkerfi, áhorfendur, tjöld, auglýsingaskilti o.s.frv. hafi meiri áhrif á hrossið sem er vant svæðinu en aðkomu hrossið.
Kynbótasýningarnar verða fimm á næsta ári og haldnar á fjórum stöðum.
Kynbótasýningar árið 2022 í Þýskalandi
Neuler: 09.05 – 11.05.2022
Verden: 23.05 – 26.05.2022
Aegidienberg: 02.06 – 04.06.2022
Lingen: 20.06 – 22.06.2022
Verden: 16.08 – 18.08.2022
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH